Útivera og gleði
14. maí 2007 klukkan 11:35
Það gefst ekki mikill tími í blogg því það er svo margt skemmtilegt að gera. Við Óli höfum skipst á að vera í fríi svona a.m.k. að hluta til og höfum líka getað unnið heima. Það er ágætt að dreifa fríinu, ekki síst á meðan Diljan er svona ungur og Búi til þess að gera ný kominn til okkar. Þeir hafa farið í bústaðinn og gamla Dalakofann, í afmæli (til hamingju Þórdís litla) og út í garð, svona fyrir utan hinar hefðbundnu göngur Búa. Diljan fær nú ekki að fara í göngu nema út í garð og það er mikil sorg þegar hann horfir á eftir Búa. Reynum að dúlla extra við hann á meðan. Hann er of stuttur til hnésins í lengri túra og svo hefur hann ekki fengið allar bólusetningar enn. Hann lætur nú líka eins og ég veit ekki hvað í göngum, jú eins og hvolpur ;-)
Hér eru myndir af gaurunum í Dalakofanum, það er svo gaman að veltast í grasinu og svo gott að það skuli loksins vera komið gott veður......

Í dag fara þeir báðir til dýralæknis í sprautur og tékk. Hlakka ekki til - vona bara að við förum ekki öll að gráta. Meira síðar......

María Ammendrup