Um Búa og Diljan

Óseyrar Búi fæddist 27. febrúar 2004. Foreldrar hans eru Lazycroft's Orlando og Skutuls Fífa.
Skutuls Diljan fæddist 29. janúar 2007. Foreldrar hans eru ISCH Tibama's Golden Cordelia og Tibama's Think Twice.

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Diljan er að verða alger gullmoli

30. júní 2007 klukkan 10:06
Litli hvolpurinn okkar hann Diljan er að verða alger stjarna. Það er ekki nóg með að hann sé að stækka og verða að afar fallegum hundi, heldur er hann svo rólegur, skemmtilegur og duglegur að leika sér sjálfur. Hann er mikil persóna og gerir margt sniðugt. Það liggur við að við séum hissa á því hve þroskaður hann er, aðeins fimm mánaða gamall - er á margan hátt eins og íhugull spekingur, e.t.v. gömul sál. Sjáiði bara hvað hann er orðinn fallegur.... 



Þessa myndir voru teknar fyrir austan í sólinni. Hann stillti sér upp eins og fyrirsæta, alger dúlla.
 


Er líka sætur frá þessari hlið. 
 


Maður er stundum að hugsa um tilganginn með þessu öllu.....
 


En Búi fyrirmynd og vinur er aldrei langt undan og ef eitthvað bjátar á hjá Diljani er hann mættur á svæðið að athuga sinn skjólstæðing. Í einu skiptin sem þeir eru ekki einlægir bandamenn er þegar matur er á borðum. Búi passar sinn mat en Diljan sætir færis þó hann sé nýbúinn að borða sinn skammt og hann sé dauðhræddur við skammir Búa fyrir matarhnuplið. Maður er bara allaf svo svangur. Það er ótrúlega fyndið að sjá Diljan sitja við hlið Búa þegar matargjafir eru og horfa í aðra átt, mjög sakleysislegur. Síðan gjóar hann augunum af og til í áttina að leifunum og bíður í trú um að eitthvað, bara eitthvað smá verði eftir til að narta í.  Fyrst skildum við ekkert í hvert hann var að horfa, sá stutti, á skápahurðir og fleira óáhugavert. Nei, þetta á að sýna að hann sé ekki að ásælast mat Búa og forðar honum í leiðinni frá skömmum. En hann ásælist og það af lífs og sálar kröftum. 

Búi hefur kennt honum að halda sig fjarri en þetta matarstand hjálpar þó til með að hann er viljugri að borða sjálfur. Yfirleitt tekur óratíma og þolinmæði að mata hann en af því að Dilli er alltaf á vakt eftir afgöngum kemur æ oftar fyrir að hann kemur aftur að skálinni, svona til að gæta sinna hagsmuna og kenna þeim stutta almenna mannasiði í kringum höfðingja.

Við höfum farið í bústaðinn og í Cavaliergöngu þar sem við hittum marga sæta og góða hunda. Sáum t.d. París, Emmu og Vála. Höfum almennt haft það mjög gott í góða veðrinu. Kíkið á fleiri myndir af okkur í sólbaði í albúminu, en að síðustu varð ég að setja inn glansmyndina af Búa góða í lúpínubeði. Hvílík gleði!
 



María Ammendrup
Hæ hæ.
Takk fyrir síðast,og mikið var nú gaman að hitta ykkur loksins.

Þið eruð svo þvílíkt flottir herramenn,Búi svo virðulegur og fínn og Diljan...jedúddamía..fegurðin á litla kút. Hann bara bræddi okkur allar upp úr skónum ,með þetta fallega andlit sitt.

*Bráðn-Bráðn*

Hlökkum til að hitta ykkur næst töffarar.
Emma pæja og co.
01. júlí 2007 klukkan 21:12
Vá !

Mikið rosalega hefur hann Diljan stækkað.
Bestu Kveðjur

Moli,Kandís og co,
05. júlí 2007 klukkan 18:49
Ótrúlegt hvað þeir lífga uppá tilveruna þessir kappar. Það var gaman að hitta ykkur um daginn í Cavaliergöngunni og verður gaman að sjá hvað þeir hafa breyst þegar við hittumst næst.
Sólarkveðja úr Hafnarfirði
París og Guðrún Lilja
15. júlí 2007 klukkan 17:10

Skrifa athugasemd